Saturday, February 26, 2011

Buenos Aires, land draumanna!

Ég skal nú segja ykkur tad...
Rútuferdin til Buenos Aires var snilld. Ferdin tók bara 23 tíma en tessir tímar flugu svo hratt, sérstaklega med ollum rútuleikjunum okkar, frábaera matnum og ofáti á ávoxtum vid landamaerin (tad má s.s. ekki flytja inn ávexti frá Chile til Argentínu. basic) og svefn sem gekk eins og í sogu tar sem um var ad raeda thaegilegasta faramáta sem vid hofum nokkurn tíman farid í!
Tegar vid komum í midbaeinn tar sem hostelid okkar er vorum vid farnar ad finna fyrir svo mikilli svengd ad audvitad hrodudum vid okkur á besta stadinn í baenum...McDonalds! Bacon deluxe borgarar og staekkud máltíd. Gód hugmynd á teim tíma.
Tar sem ekki er um mikid af strondum í Buenos Aires turftum vid Gunnsa ad finna okkur eitthvad mergjad ad gera. Tannig ad vid kynntumst ollum starfsmonnum barsins sem er á hostelinu. en ekki hvad...
Naesta dag vorum vid vaktar med pompi og prakti tví tá áttum vid (skv. hostelinu..) ad skipta um herbergi. Tannig ad vid tókum saman foggur okkar og alla helstu snakkpoka frá ofurmonsi okkar en hvernig reddar madur sér annars ef ekki er hlolli í vidkomandi landi? Naesta herbergi var svo alveg hreint frábaert tví án tess hefdum vid ekki kynnst honum Rikka okkar...Erik Van Der Zwan, hollenskur, krullhaerdur og hávaxin horrengla sem hreitir út úr sér kaldhaednum kommentum, akkúrat tad sem vid turftum! og já, hinn herbergisfélagi okkar var toframadur sem heilladi forvitnu Gunnsu mína upp úr skónum med ollu helstu spilagoldrum sínum. Eftir ad hafa kynnst Erik orlitid meira komumst vid ad tví ad hann átti einnig ad vera ad ferdast med vini sínum um sudur ameríku en félagi hans turfti tví midur ad fara hid snarasta tví hann naeldi sér í eitthvad ofnaemi á fyrsta áfangastad. Vitaskuld hugsudum vid med okkur ad hann gaeti nú ekki verdi ad skemmta sér einn svo ad vid tókum hann undir okkar verndarvaeng og gerdum hann ad nýja besta vini okkar. Og hvad gera bestu vinir? slúdra og deila med sér dýpstu og ólukkulegustu leyndarmál tess ad vera á bakpokaferdalagi. Greyjid Rikki vissi ekkert hvad hann ar ad demba sér útí tegar hann hitti tvaer litlar, saklausar íslenskar stúlkur med kjaft og skot af hláturskostum.
Fyrsta mál á dagskrá var ad gera tad sem Argentína er tekktust fyrir, naeturlífid í Palermo med gestum hostelsins sem eru tvílíkir karakterar. Gella frá Brasilíu sem dansar eins og díva og klaedir sig í himinháa haela (ekki tad ad hun er ekki há fyrir) og trona stutta kjóla, kann oll login a dansgólfinu og kennir ollum helstu dansana vid hvert lag. Naggaralegur drengur kom upp ad okkur til ad naela sér dans vid ísdrottningarnar og reyndi ad heilla okkur med nýju strípunum sínum og hraedilega smekk sínum á konum tví eftir nokkra dansa var hann kominn út í horn med breskri gellu sem fittar vid lýsinguna ad breskar gellur eru ekki gellur. ég gaeti haldid endalaust áfram med lýsingar á svartabossa, hostellidinu, tannlausa, ástralska og fleiri og fleiri.
Hostelid er eins og fyrr var nefnt snilld tví tar get ég spreytt mig í eldhúsinu, gert rétt dagsins med hjálp graenmetisskerarans mín, Gunnsu og ekki eru nú eldhúspartýin leidinleg. Hittum ástralskt par sem er á trilljón mánada ferdalagi um allan heiminn og jidúddamía, tau aetludu ad sleppa Íslandi! Ekki haegt. Svo ad vid sannfaerdumtau um tad ad vid myndum lána teim helstu sófa til ad gista á, fara med teim um landid og ég fann meira ad segja flug fyrir tau á adeins 45 túskjell. Eftir nokkra daga af tví ad labba/ráfa/letilabba um borgina ákvádum vid ad eitthvad tyrftum vid nú ad gera sem ekki er haegt í odru landi...Tangósýning! Tetta gerdist allt saman í gaer tar sem vid drógum Rikka med okkur í tangócombo sem innihélt tangókennslu (vid erum med plagg uppá faerni okkar), triggja rétta máltíd (líklegast hitad í orbylgjuofni), all you can drink (Húsvín sem var alltaf blandad med nýju og nýju víni sem tjah, bragdadist ekki alveg best í heimi) og sýningu. Aetli Gunnhildur hafi ekki verid leikmadur kvoldsins med hlátraskollunum og skerandi gaesahúd sinni og tá sérlega tegar bandóníumleikarar og strengir tóku Piazzola log. Ég turfti smá tíma til ad útskýra fyrir ástrolskum vinum okkar ad hún kynni allt sem mamma hennar spiladi og tá sérlega tegar hún saknar hennar svo.
Nú aetlum vid ad finna okkur nýjan rétt til ad elda (allar uppástungur vel tegnar) og hitta sídan fraenku hennar ásu hana Onnu Katrínu í Palermo...aetli Rikki komi ekki bara med?

bisous
Ingibjorg og Gunnsa

P.s. Held ad Gunnhildur turfi á áfallahjálp ad halda tegar hún kemur heim. Tid verdid eiginlega ad heyra hana segja soguna tvi hún kann sko ad dramatísera sogur! En sem sagt, vid vorum bara ad rolta a adal verlsunargotunni einn daginn og eins og alla hina dagana var mikil mannamergd tar. Naesta sem ég veit var Gunnhildur ad panikka og bidja mig um ad hlaupa med sér inn í mollinn. gráti naest segir hún ad kona hafi reynt ad raena sig med tví ad setja trefil fyrir toskuna hennar og renna frá adalhólfinu sem innihélt allt! Sem betur fer er taskan med sál og er tengd Gunnsu miklum bondum tví hún fann fyrir tessu og konan nádi engu. fjúkket!

1 comment:

  1. Flott! mig dreymdi að ég væri með ykkur að ferðast í nótt. Mér líður mjög vel á BUGLINU en betur í herberginu þínu.
    Kveðjur til ykkar, Marta lilla systir

    ReplyDelete